Securitas leitar af kraftmiklum einstaklingi til að slást í okkar frábæra tækniteymi á Akureyri.
Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði.
Ef þú...
- hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
- sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
- býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
- ert með sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er það kostur
...þá gætum við verið að leita að þér!
Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga. Störfin henta öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst nk. og skulu umsóknir sendar inn á www.securitas.is. Nánari upplýsingar veitir Birgir Már Sigurðsson, deildarstjóri, í síma 580-7000.