Eimskip leitar að framsæknum og árangursdrifnum einstaklingi til framtíðarstarfa í stöðu viðskiptastjóra í söludeild innflutnings. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með spennandi tækifærum í alþjóðlegu umhverfi.
Starf viðskiptastjóra felst í sölu flutningaþjónustu sem snýr að innflutningi og tengdri þjónustu, ásamt því að veita faglega flutningaráðgjöf og þróa lausnir handa viðskiptavinum.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Þjónusta, ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini
- Tilboðs-og samningagerð
- Vinna að markaðsgreiningum
- Koma á og viðhalda viðskiptasamböndum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Sölu- og samningafærni
- Greiningarhæfni
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Góð samskiptahæfni
Fríðindi í starfi:
- Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
- Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Andrea Sævarsdóttir, forstöðumaður, uas@eimskip.com
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.