Eimskip leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í fullt starf sérfræðings í Greininga- og verkefnadeild Innanlandssviðs félagsins.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem unnið er náið með teymum og hagsmunaaðilum innan félagsins til að tryggja að verkefni séu unnin á skilvirkan og árangursríkan hátt. Starfið krefst nákvæmni, frumkvæðis og góðrar hæfni í greiningu og innleiðingu ferla og kerfa á sviðinu.
Á Innanlandssviði starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið. Sviðið er leiðandi í innanlandsflutningum og vörudreifingu, og sinnir jafnframt vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Stuðningur við innleiðingu tölvukerfa í samvinnu við Upplýsingatæknisvið
- Tryggja framvindu verkefna og að þau séu unnin innan tímaramma og kostnaðaráætlunar
- Greining og endurskoðun á ferlum til að bæta skilvirkni og árangur
- Samvinna við hagsmunaaðila til að skilgreina kröfur og væntingar
- Þjálfun og stuðningur við notendur nýrra kerfa
- Skýrslugerð og kynning á framvindu verkefna til stjórnenda
- Önnur tilfallandi verkefni innan sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af því að leiða verkefni er kostur
- Góð kunnátta í greiningu og endurskoðun ferla
- Frumkvæði, skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
- Sterk leiðtogahæfni og geta til að vinna sjálfstætt
- Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að takast á við áskoranir
- Sveigjanleiki og geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
- Góð þekking á upplýsingatækni
Fríðindi í starfi
- Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
- Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk
- Nútímaleg vinnuaðstaða
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Nánari upplýsingar veitir Margeir Hafsteinsson, forstöðumaður, margh@eimskip.com
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2025.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Eimskip er alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem sinnir gáma- og frystiflutningum í Norður-Atlantshafi og sérhæfir sig í flutningsmiðlun með áherslu á flutninga á frosinni og kældri vöru. Með siglingakerfi sínu tengir Eimskip saman Evrópu og Norður-Ameríku í gegnum Ísland. Félagið starfrækir 56 skrifstofur í 20 löndum og hefur á að skipa fjölbreyttum hópi starfsfólks en í heildina starfa um 1.700 manns af 43 þjóðernum hjá félaginu.
Eimskip hefur skýra stefnu í sjálfbærnimálum og hefur sett sér metnaðarfull markmið þegar kemur að þessum málaflokkum meðal annars að vera kolefnishlutlaus fyrir árið 2040. Áhersla er lögð á jöfn tækifæri í góðu starfsumhverfi þar sem verkefnamiðað vinnurými skipar stóran sess.