Síminn leitar að árangursmiðuðum og drífandi sölustjóra til að leiða söluaðgerðir og árangur á einstaklingssviði Símans.
Sölustjóri ber ábyrgð á gerð og framkvæmd söluáætlana sem og leiða söluaðgerðir á einstaklingsmarkaði. Viðkomandi vinnur náið með forstöðumanni sölu og þjónustuupplifunar og er í lykilhlutverki til að tryggja hámarksárangur söluteyma innan Símans.
Ef þú brennur fyrir sölu og átt auðvelt með að sjá tækifæri og lausnir þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Gerð og eftirfylgni með söluáætlunum fyrir sölueiningar Símans á einstaklingsmarkaði
- Leiða söluaðgerðir, allt frá hugmyndavinnu til útfærslu
- Finna og greina ný sölutækifæri
- Mælingar og greiningar á árangri söluaðgerða
- Samstarf við stjórnendur sölu og þjónustu um innleiðingu söluverkferla, skýrslugerðar og fleira
- Samstarf við markaðsdeild og vöruþróunarteymi Símans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla og færni í sölu og söluaðgerðum skilyrði
- Reynsla af stýringu og mótun söluaðgerða er kostur
- Frumkvæði og lausnarmiðuð hugsun
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Skilvirk og skipulögð vinnubrögð, yfirsýn og sjálfstæði
- Reynsla og áhugi á íslenskum fjarskiptamarkaði er kostur
Síðan 1906 hefur Síminn tengt heimili og fyrirtæki á Íslandi við umheiminn. Hjá Símanum starfa um 300 einstaklingar sem hafa metnað og þekkingu til að veita framúrskarandi þjónustu byggða á fyrsta flokks tækni. Við byggjum á sterkri liðsheild og kunnum að meta árangursdrifið og lausnamiðað hugarfar. Síminn vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk og lögð er mikil áhersla á vellíðan, hvetjandi umhverfi, tækifæri til vaxtar, jafnrétti og fjölbreytileika.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2025.
Nánari upplýsingar veitir mannaudur@siminn.is
Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um.
Sækja um starf