Norðurál leitar að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi í starf vaktstjóra í kerskála. Unnið er á 8 tíma vöktum, dag-, kvöld-, og næturvöktum (fimm daga vinna/fimm daga frí). Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi í starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Vaktstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra kerskála.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Stjórnun og umsjón með rekstri vaktar
· Eftirfylgni öryggismála
· Umsjón með mannauðsmálum vaktar
· Umsjón og eftirlit með tækjabúnaði
· Þátttaka í stefnumótun
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Menntun sem nýtist í starfi
· Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun
· Jákvæðni og góð samskiptafærni
· Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð
· Góð íslensku- og enskukunnátta
· Góð tölvukunnátta og þekking á helstu hugbúnaðarkerfum (Word, Excel, Outlook og Powerpoint)
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní. Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi.
Við leggjum áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Starfsstöðin er á Grundartanga.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Mjöll Lárusdóttir sérfræðingur mannauðssviðs, hafdisml@nordural.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað að ráðningu lokinni.
Norðurál er einn stærsti vinnustaður landsins og framleiðir hreint ál úr íslenskri orku. Ál er uppistaðan í léttari varningi og tækjum, sem dregur úr orkunotkun á heimsvísu. Ál er því mikilvægur hluti af vegferðinni í átt að kolefnishlutlausum heimi og er endurvinnanlegt að nær öllu leyti. Framleiðsla okkar hefur eitt minnsta kolefnisfótspor í heimi og fer eftir ströngum sjálfbærniviðmiðum